Dulkóðun minnis tækisins eða minniskorts
Til að dulkóða minni tækisins velurðu
Minni símans
.
Til að dulkóða minniskort velurðu
Minniskort
og svo úr eftirfarandi:
Dulkóða án þess að vista lykil — Dulkóðaðu minniskort án þess að vista
dulkóðunarlykilinn. Ef þú velur þennan valkost geturðu ekki notað minniskortið í öðrum
tækjum og ef þú velur upprunalegar stillingar geturðu ekki afkóðað minniskortið.
Dulkóða og vista lykil — Dulkóðaðu minniskortið og vistaðu lykilinn handvirkt í
sjálfgefinni möppu. Geymdu lykilinn á öruggum stað utan tækisins, til öryggis. Til dæmis
geturðu sent lykilinn í tölvuna. Sláðu inn aðgangssetningu fyrir lykilinn og heiti fyrir
skrá lykilsins. Aðgangssetningin ætti að vera löng og flókin.
Dulkóða með endursettum lykli — Dulkóðaðu minniskortið með lyklinum sem þú
hefur fengið. Veldu skrá lykils og sláðu inn aðgangssetninguna.