
Forritastjórnun
Með Forritastjórnun er hægt að sjá hugbúnaðarpakkana sem eru uppsettir í tækinu.
Hægt er að skoða upplýsingar um uppsett forrit, fjarlægja forrit og tilgreina
uppsetningarstillingar.
Hægt er að setja upp tvenns konar forrit og hugbúnað í tækinu:
•
JME-forrit byggð á Java-tækni með endingunni .jad eða .jar
•
Önnur forrit og hugbúnaður sem henta Symbian-stýrikerfinu með endingunni .sis
eða .sisx
Settu aðeins upp hugbúnað sem er samhæfur tækinu.