Forrit og hugbúnaður fjarlægður
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stj. forrita
og
Uppsett forrit
.
Flettu að hugbúnaðarpakka og veldu
Valkostir
>
Fjarlægja
. Veldu
Já
til að staðfesta
valið.
Ef hugbúnaður er fjarlægður er aðeins hægt að setja hann upp aftur ef upphaflegi
hugbúnaðarpakkinn eða fullkomið afrit af pakkanum er til. Ef hugbúnaðarpakki er
fjarlægður er hugsanlega ekki lengur hægt að opna skjöl sem búin hafa verið til með
þeim hugbúnaði.
Ef hugbúnaðarpakkinn sem verið er að fjarlægja hefur áhrif á annan hugbúnaðarpakka
gæti sá pakki hætt að virka. Nánari upplýsingar eru í leiðbeiningunum sem fylgja með
uppsetta hugbúnaðarpakkanum.