Nokia E52 - Uppsetning forrita og hugbúnaðar 

background image

Uppsetning forrita og hugbúnaðar

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður þegar

vafrað er eða fá þær sendar sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi eða nota

aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth. Hægt er að nota Nokia Application Installer í

Nokia PC Suite til að setja upp forrit í tækinu.
Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stj. forrita

.

Uppsetningarskrárnar eru í möppunni Uppsetn.skrár og uppsettu forritin í möppunni

Uppsett forrit.
Tákn sýna eftirfarandi:

.sis- eða .sisx-forrit

Java-forrit

Forrit sett upp á minniskortinu

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá traustum

aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java

Verified™.
Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:

Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða framleiðanda forritsins

skaltu velja

Valkostir

>

Skoða upplýsingar

.

Öryggi og gagnastjórnun 153

background image

Til að birta upplýsingar um öryggisvottorð forritsins skaltu velja

Skoða

upplýsingar

.

Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða endurbætur á forriti sem þegar

er uppsett geturðu aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort

upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða öryggisafrit af öllum

hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið

skaltu fyrst fjarlægja forritið og síðan setja það upp aftur úr upphaflegu

uppsetningarskránni eða öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar getur

tækið beðið þig um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur

fyrir forritið biður tækið þig um að velja aðgangsstað. Þegar .JAR-skráin er sótt getur

notandinn þurft að færa inn notandanafn og lykilorð til að komast á miðlarann. Þú

getur fengið notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða framleiðanda forritsins.

Til að setja upp forrit eða hugbúnað gerir þú eftirfarandi:
1 Til að staðsetja uppsetningarskrá velurðu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stj. forrita

og

Uppsetn.skrár

. Að öðrum kosti skaltu leita að uppsetningarskrám með Skráarstjóra

eða velja

Skilaboð

>

Innhólf

og opna skilaboð sem innihalda uppsetningarskrá.

2 Veldu forritið sem þú vilt setja upp í Forritastjórnun.

Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um stöðu uppsetningarinnar.

Ef þú setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið viðvörun.

Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið ef þú ert viss um uppruna þess og

innihald.

Veldu forrit til að setja það upp. Ef forritið er ekki með sjálfgefna möppu skilgreinda er

það sett upp í möppunni Uppsetn. á aðalvalmyndinni.

Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða fjarlægðir og hvenær það

var gert skaltu velja

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins

vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið því að það

virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir að forrit þeirra hafa verið

sett upp á samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki

sé hægt að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia PC Suite til að taka

öryggisafrit af uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu

nota Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr minni tækisins. Ef .sis-skráin

hefur verið send sem viðhengi í skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.

154 Öryggi og gagnastjórnun