Nota leyfa
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi sem tilgreinir hvernig hægt
er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite
til að taka öryggisafrit af bæði leyfum og efninu.
Ekki er víst að aðrar flutningsaðferðir flytji leyfið sem þarf að endurstilla með OMA DRM-
vörðu efni, til þess að hægt sé að nota það eftir að minni tækisins hefur verið forsniðið.
Einnig gæti þurft að endurstilla leyfið ef skrár í tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt leyfi þess ef minni tækisins
er forsniðið. Einnig gæti leyfið og efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist leyfið
eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang að
varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.
Til að skoða leyfi eftir gerð velurðu
Gild leyfi
,
Ógild leyfi
eða
Ónotuð leyfi
.
Til að skoða upplýsingar um leyfi velurðu
Valkostir
>
Um leyfi
.
Fyrir hverja mynd- og hljóðskrá eru birtar eftirfarandi upplýsingar:
Staða — Staðan er
Leyfi er gilt
,
Leyfi er útrunnið
eða
Leyfi er ekki enn gilt
.
Sending efnis —
Leyft
táknar að hægt sé að senda skrána í annað tæki.
Efni í síma —
Já
táknar að skráin er geymd í tækinu og slóð hennar er birt.
Nei
táknar
að skráin er ekki geymd í tækinu.
Veldu
Ógild leyfi
>
Valkostir
>
Sækja nýtt leyfi
í leyfisskjánum til að gera leyfi virkt.
Samþykktu að koma á nettengingu og verður þér þá beint á vefsvæði þar sem hægt er
að kaupa heimildir fyrir skrána.
Til að fjarlægja notkunarheimild af skrá velurðu skrána og svo
Valkostir
>
Eyða
. Ef fleiri
en ein notkunarheimild tengist sömu skrá verður öllum heimildunum eytt.
156 Öryggi og gagnastjórnun
Á hópleyfisskjánum eru sýndar allar skrár sem tengjast hópheimild. Ef mörgum hljóð-
eða myndskrám hefur verið hlaðið niður með sömu heimild eru þær allar birtar á þessum
skjá. Hægt er að opna hópskjáinn í flipanum fyrir gild leyfi eða ógild leyfi. Til þess að
opna þessar skrár skaltu opna hópheimildamöppuna.