Nokia E52 - Tækinu læst

background image

Tækinu læst

Láskóðinn kemur í veg fyrir að óviðkomandi noti tækið þitt. Forstillta númerið er 12345.

Til að læsa tækinu ýtirðu á rofann á heimaskjánum og velur

Læsa síma

.

Til að opna tækið velurðu

Úr lás

>

Í lagi

, slærð inn læsingarkóðann og velur

Í lagi

.

Láskóðanum er breytt með því að velja

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Almennar

>

Öryggi

>

Sími og SIM-kort

. Sláðu inn gamla kóðann og síðan nýja kóðann

tvisvar. Nýi kóðinn má vera 4-255 stafa langur. Hægt er að nota bæði tölu- og bókstafi

og há- og lágstafi.

Skrifaðu niður nýja kóðann og geymdu hann á öruggum stað, fjarri tækinu. Ef þú gleymir

láskóðanum og tækið læsist skaltu fara með það til viðurkennds þjónustuaðila Nokia.

Hugsanlega þarf að borga fyrir slíka þjónustu. Til að opna tækið verður að setja

hugbúnaðinn upp aftur og því glatast mögulega gögn sem voru vistuð í tækinu.

Einnig er hægt að læsa tækinu án þess að hafa það við höndina með því að senda

textaskilaboð í það. Kveikt er á ytri læsingu og texti fyrir skilaboð hennar tilgreindur

með því að velja

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Almennar

>

Öryggi

>

Sími

og SIM-kort

>

Ytri símalæsing

>

Kveikt

. Sláðu inn skilaboð ytri læsingar og staðfestu

skilaboðin. Skilaboðin verða að vera a.m.k. 5 stafir að lengd. Skrifaðu textann niður, það

gæti komið sér vel síðar.