Nokia E52 - Vottorðastjórnun

background image

Vottorðastjórnun

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Almennar

>

Öryggi

>

Vottorðastjórnun

.

Stafræn vottorð eru notuð til að staðfesta uppruna hugbúnaðar en tryggja ekki öryggi.

Um fjórar tegundir vottorða er að ræða: heimildavottorð, einkavottorð, vottorð traustra

síðna og tækjavottorð. Ef tengingin er örugg getur verið að miðlari sendi vottorð í tækið.

Þegar vottorðið er móttekið er það sannvottað af heimildavottorði sem er vistað í

tækinu. Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef ekki er rétt vottorð

í símanum.

Öryggi og gagnastjórnun 149

background image

Þú getur sótt vottorð á vefsvæði eða móttekið vottorðið sem skeyti. Nota ætti vottorð

þegar senda á trúnaðarupplýsingar til netbanka eða miðlara. Einnig ætti að nota þau

til að minnka hættuna á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja

áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu og settur upp í tækinu.
Ábending: Þegar nýju vottorði er bætt við skal sannvotta uppruna þess.