VPN-aðgangsstöðum breytt
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
Nettengileiðir
.
Aðgangsstaður er staðurinn þar sem síminn tengist við netkerfi. Til að nota tölvupóst
og margmiðlunarþjónustu eða til að opna vefsíður verður þú fyrst að skilgreina
aðgangsstaði fyrir þessa þjónustu. VPN-aðgangsstaðir para VPN-stefnur við venjulega
netaðgangsstaði til að koma á öruggum tengingum.
Þjónustuveitan gæti forstillt suma eða alla aðgangsstaði fyrir tækið þitt og því er ekki
víst að þú getir búið til, breytt eða fjarlægt aðgangsstaði.
Veldu
Valkostir
>
Breyta
og skilgreindu eftirfarandi:
Heiti tengingar — Sláðu inn heiti fyrir VPN-aðgangsstaðinn.
VPN-stefna — Veldu VPN-stefnuna sem þú vilt sameina við netaðgangsstaðinn.
Internetaðgangsst. — Veldu netaðgangsstaðinn sem á að sameina við VPN-stefnu til
að búa til örugga tengingu fyrir gagnaflutninga.
Veff. proxy-miðlara — Sláðu inn veffang proxy-miðlarans fyrir einkanetið.
Númer proxy-gáttar — Sláðu inn númer proxy-gáttarinnar.
Nota aðgangsstað — Veldu hvort tengingum um aðgangsstaðinn er komið á
sjálfkrafa.
Mismunandi getur verið hvaða stillingar eru í boði fyrir breytingar.
Leitaðu upplýsingar um réttar stillingar í tæknideild fyrirtækis þíns.