Nokia E52 - Um stafræn réttindi

background image

Um stafræn réttindi

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og

lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað

afritun, breytingu eða flutning mynda, tónlistar og annars efnis.
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að

vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir

stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki er hægt að opna efni sem

er varið með WMDRM 10 og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að

verja efni geta efniseigendur beðið um að hæfni slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni

sem er varið með stafrænni réttindatækni sé afturkölluð. Með afturköllun er einnig hægt

að hindra endurnýjun á þannig vernduðu efni sem þegar er í tækinu. Afturköllun slíks

hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er varið með öðrum gerðum stafrænna

réttinda eða notkun efnis sem ekki er varið með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi sem tilgreinir hvernig hægt

er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite

til að taka öryggisafrit af bæði leyfum og efninu.
Ekki er víst að aðrar flutningsaðferðir flytji leyfin sem þarf að endurstilla með OMA DRM-

vörðu efni, til þess að hægt sé að nota það eftir að minni tækisins hefur verið forsniðið.

Einnig gæti þurft að endurstilla leyfin ef skrár í tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt leyfum þess ef minni

tækisins er forsniðið. Einnig gætu leyfin og efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast.

Glatist leyfin eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.

Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang að

varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.

6

Öryggi