Nokia E52 - Um tækið

background image

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til notkunar í UMTS 900 og

2100 MHz símkerfi og GSM 850, 900, 1800 og 1900 MHz símkerfi. Þjónustuveitan gefur

nánari upplýsingar um símkerfi.
Tækið styður nokkrar tengingaraðferðir og eins og við á um tölvur gæti það verið

berskjaldað fyrir vírusum og öðru skaðlegu efni. Fara skal með gát við meðhöndlun

skilaboða, tengibeiðna, við vefskoðun og við niðurhal. Aðeins skal setja upp og nota

þjónustu og hugbúnað frá áreiðanlegum aðilum sem bjóða upp á nægjanlegt öryggi og

vörn, líkt og Symbian Signed hugbúnað eða hugbúnað sem hefur staðist Java Verified™

prófun. Þú ættir að íhuga að setja vírusvarnarhugbúnað og annan öryggishugbúnað

upp í tækinu og tölvum sem tengjast við það.
Í tækinu gætu verið foruppsett bókamerki og tenglar á netsíður þriðju aðila sem gætu

gert þér kleift að nálgast slíkar síður. Þær tengjast ekki Nokia og Nokia leggur hvorki

stuðning sinn við þær né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú nálgast slík svæði skaltu huga að

öryggi og efni.

Viðvörun:

Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu.

Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og

lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað

afritun, breytingu eða flutning sumra mynda, tónlistar og annars efnis.
Taktu öryggisafrit eða haltu skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í

tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók þess vandlega, einkum

upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á skjá tækisins.
Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er að finna í notendahandbókinni.