Nokia E52 - Úrræðaleit

background image

Úrræðaleit

Á www.nokia.com/support má sjá svör við algengum spurningum um tækið.
Spurning: Hvert er læsingar-, PIN- eða PUK-númerið mitt?

Svar: Sjálfgefinn læsingarkóði er 12345. Hafðu samband við söluaðilann ef þú gleymir

eða týnir læsingarnúmerinu. Ef þú gleymir eða glatar PIN- eða PUK-númeri, eða ef þú

hefur ekki fengið slíkt númer, skaltu hafa samband við þjónustuveituna.

Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e. svarar ekki?

Svar: Haltu heimatakkanum inni. Flettu að forritinu og ýttu á bakktakkann til að loka

forritinu.

Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?

Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler myndavélarlinsunnar séu hrein.

Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða skærir punktar á skjánum í

hvert skipti sem ég kveiki á tækinu?

Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á sumum skjám geta verið dílar

eða punktar sem lýsa annaðhvort stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla

heldur eðlilegan hlut.

Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns þegar ég nota Bluetooth?

Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að kveikt sé á Bluetooth og tækin séu

sýnileg. Gakktu einnig úr skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna tveggja sé ekki meiri

en 10 metrar (33 fet) og að ekki séu veggir eða aðrar hindranir á milli þeirra.

176 Úrræðaleit

background image

Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-tengingu?

Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið tengingunni í hinu tækinu eða

slökkt á Bluetooth í tækinu þínu. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Bluetooth

og

Bluetooth

>

Slökkt

.

Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet þó

svo ég viti að ég er innan móttökusvæðis hans?

Svar: Gakktu úr skugga um að sniðið án tengingar sé ekki í notkun í tækinu.

Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn SSID-kóða. Þú getur aðeins fengið aðgang

að netkerfum sem nota falinn SSID-kóða ef þú veist kóðann og hefur búið til

aðgangsstað þráðlauss staðarnets í Nokia-tækinu þínu.

Gakktu úr skugga um að WLAN-aðgangsstaðurinn sé ekki á rásum 12-13 þar sem ekki

er hægt að tengja þær við hann.

Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu staðarneti í Nokia-tækinu mínu?

Svar: Tenging við þráðlausa staðarnetið rofnar þegar þú ert ekki tengdur, ert ekki að

reyna að tengjast við annan aðgangsstað eða ert ekki að leita að tiltæku netkerfi. Til að

draga enn frekar úr rafhlöðueyðslu er hægt að stilla Nokia-tækið þannig að það leiti

ekki eða leiti sjaldnar að tiltækum netkerfum í bakgrunni. Tengingu við þráðlausa

staðarnetið er slitið milli þess sem leit fer fram í bakgrunni.

Slökkt er á bakgrunnsleit með því að velja

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Þráðl. staðarnet

>

Sýna vísi staðarneta

>

Aldrei

. Áfram er hægt að leita

handvirkt að tiltækum þráðlausum staðarnetum og tengjast þeim eins og vanalega.

Til að auka tíma bakgrunnsleitar velurðu

Sýna vísi staðarneta

>

og svo tímann í

Leitað að staðarnetum

.

Spurning: Af hverju get ég ekki farið á vefinn þrátt fyrir að WLAN-tenging virki

og IP-stillingarnar séu réttar?

Svar: Gakktu úr skugga um að þú hafir tilgreind réttar HTTP/ HTTPS proxy-stillingar í

frekari stillingum WLAN-aðgangsstaðarins.

Úrræðaleit 177

background image

Spurning: Hvernig kanna ég gæði undirskriftarinnar í WLAN-tengingunni minni?

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Stj. teng.

og

Virkar gagnatengingar

>

Valkostir

>

Upplýsingar

. Ef sendigæðin eru lítil eða miðlungsgóð gætirðu lent í

vandræðum með að tengjast. Reyndu aftur nær aðgangsstaðnum.

Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með öryggisstillinguna?

Svar: Gakktu úr skugga um að öryggisstillingin sé rétt og sú sama og netkerfið notar.

Til að sjá hvaða öryggisstillingu netkerfið notar velurðu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Stj. teng.

og

Virkar gagnatengingar

>

Valkostir

>

Upplýsingar

.

Kannaðu einnig eftirfarandi: þú notar rétta WPA-stillingu (fordeildur lykill eða EAP), þú

hefur slökkt á öllum EAP-gerðum sem ekki eru nauðsynlegar og allar EAP-stillingar eru

réttar (lykilorð, notendanafn, vottorð).

Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið fyrir skilaboðin mín?

Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki símanúmer, vistfang né tölvupóstfang. Veldu

Valmynd

>

Tengiliðir

, og breyttu tengiliðaspjaldinu.

Spurning: Textinn Sæki skilaboð birtist í stutta stund. Hvað er að gerast?

Svar: Tækið er að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð frá skilaboðastöðinni. Textinn

sést ef þú hefur valið

Valmynd

>

Skilaboð

og

Valkostir

>

Stillingar

>

Margmiðlunarboð

>

Móttaka margmiðlunar

>

Alltaf sjálfvirk

.

Gakktu úr skugga um að stillingar fyrir margmiðlunarboð séu rétt valdar og að

símanúmer og vefföng séu rétt.

Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu sem tækið kemur alltaf á aftur?

Svar: Tækið gæti verið að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð frá skilaboðastöðinni.

Til að koma í veg fyrir að tækið komi á gagnatengingu skaltu velja

Valmynd

>

Skilaboð

og

Valkostir

>

Stillingar

>

Margmiðlunarboð

>

Móttaka margmiðlunar

>

Handvirkt val

til að skilaboðamiðstöðin visti skilaboð sem verða sótt síðar eða

Óvirk

til að hunsa öll margmiðlunarskilaboð sem berast. Ef þú velur

Handvirkt val

færðu

tilkynningu um að ný margmiðlunarskilaboð bíði þín í skilaboðamiðstöð

margmiðlunarboða. Ef þú velur

Óvirk

kemur tækið aldrei á tengingu við símkerfið vegna

margmiðlunarskilaboða.

178 Úrræðaleit

background image

Til að láta tækið aðeins nota pakkagagnatengingu ef þú ræsir forrit eða aðgerð sem

þarfnast hennar velurðu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Pakkagögn

>

Pakkagagnatenging

>

Ef með þarf

.

Ef það dugar ekki skaltu endurræsa tækið.
Spurning: Hvernig spara ég rafhlöðuna?

Svar: Margar aðgerðir tækisins auka orkuþörf og draga úr líftíma rafhlöðunnar. Til að

spara rafhlöðuna skaltu gera eftirfarandi:

Slökktu á Bluetooth þegar þú þarft ekki að nota það.

Stöðvaðu bakgrunnsleit að WLAN. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Þráðl. staðarnet

>

Sýna vísi staðarneta

>

Aldrei

. Áfram er hægt að

leita handvirkt að tiltækum þráðlausum staðarnetum og tengjast þeim eins og

vanalega.

Stilltu tækið þannig að það noti aðeins pakkagagnatengingu ef forrit eða aðgerð

sem þarf á henni að halda er ræst. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Pakkagögn

>

Pakkagagnatenging

>

Ef með þarf

.

Lokaðu á sjálfvirkt niðurhal nýrra korta í kortaforritinu. Veldu

Valmynd

>

Forrit

>

Kort

og

Valkostir

>

Stillingar

>

Internet

>

Tenging

.

Breyttu tímanum sem líður þar til slökkt er á baklýsingunni. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Almennar

>

Sérstillingar

>

Skjár

>

Tímamörk

ljósa

.

Lokaðu forritum sem þú ert ekki að nota. Haltu heimatakkanum inni. Flettu að

forritinu og ýttu á bakktakkann til að loka forritinu.