Nokia E52 - A-GPS (Assisted GPS)

background image

A-GPS (Assisted GPS)

Tækið styður einnig GPS með leiðsögn (A-GPS).
A-GPS þarf netstuðning.
Assisted GPS (A-GPS) er notað til að fá hjálpargögn með pakkagagnatengingu og hjálpar

við að reikna út hnit staðsetningar þinnar þegar tækið tekur við merkjum frá

gervitunglum.
Þegar þú kveikir á A-GPS tekur tækið á móti gervihnattaupplýsingar frá

hjálpargagnamiðlara um farsímakerfið. Tækið getur verið fljótara að ná GPS-

staðsetningu ef hjálpargögn eru notuð.
Tækið er forstillt þannig að það noti Nokia A-GPS þjónustuna, ef engar sérstakar A-GPS

stillingar frá þjónustuveitunni eru í boði. Hjálpargögnin eru aðeins sótt frá Nokia A-GPS

þjónustumiðlaranum þegar þörf krefur.
A-GPS þjónustan er gerð óvirk með því að velja

Valmynd

>

Forrit

>

GPS-gögn

og

Valkostir

>

Stillingar staðsetninga

>

Staðsetningaraðferðir

>

GPS með

stuðningi

>

Valkostir

>

Slökkva

.

Ferðalög 85

background image

Það verður að vera internetaðgangsstaður í tækinu til að hægt sé að sækja hjálpargögn

frá Nokia A-GPS þjónustunni um pakkagagnatengingu. Hægt er að tilgreina aðgangsstað

fyrir A-GPS í staðsetningarstillingum. Ekki er hægt að nota aðgangsstað fyrir þráðlaust

staðarnet (WLAN) fyrir þessa þjónustu. Aðeins er hægt að nota internetaðgangsstað

fyrir pakkagögn. Tækið biður þig um að velja internetgangsstaðinn í fyrsta skipti sem

GPS er notað.