Nokia E52 - Góð ráð við að koma á GPS-tengingu

background image

Góð ráð við að koma á GPS-tengingu
Athugaðu stöðu merkja frá gervitungli

Veldu

Valmynd

>

Forrit

og

GPS-gögn

>

Valkostir

>

Staða gervitungla

.

Ef tækið hefur fundið gervitungl birtist stika fyrir hvert þeirra á upplýsingaskjánum fyrir

gervitungl. Því lengri sem stikan er, þeim mun sterkara er gervihnattamerkið. Stikan

skiptir litum þegar tækið hefur fengið nægar upplýsingar frá gervihnattamerkinu til að

geta reiknað út staðsetningu þína.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum gervitunglum til að geta reiknað

út staðsetningu þína. Þegar frumútreikningur hefur farið fram kann það að vera

mögulegt að reikna út staðsetningu þína með þremur gervitunglum. Hins vegar er

útreikningurinn nákvæmari þegar fleiri gervitungl finnast.
Ef ekkert merki frá gervitungli finnst skal athuga eftirfarandi:

Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.

Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.

Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á merkisstyrkinn.

Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er víst að gervihnattamerki berist

í gegnum þær.

Gakktu úr skugga um að þú sért ekki að byrgja loftnetið með hendinni.

86 Ferðalög

background image

Það getur tekið allt frá fáeinum sekúndum upp í nokkrar mínútur að koma á GPS-

tengingu. Það getur tekið lengri tíma að koma á GPS-tengingu í bíl.
GPS-móttakarinn notar orku rafhlöðunnar. Notkun hans getur tæmt rafhlöðuna fyrr en

ella.