Staðsetningarbeiðnir
Þjónustuveita kann að biðja þig um upplýsingar um staðsetningu þína. Þú gætir fengið
sendar upplýsingar um staðbundið efni, svo sem fréttir af veðri eða umferð, eftir því
hvar tækið er staðsett.
Þegar fyrirspurn um staðsetningu berst birtast skilaboð sem sýna hvaða þjónustuveita
sendir hana út. Veldu
Samþykkja
til að leyfa að upplýsingar um staðsetningu séu sendar
eða
Hafna
til að hafna beiðninni.
Leiðarmerki
Með Leiðarmerkjum er hægt að vista í tækinu upplýsingar um staðsetningu tiltekinna
staða. Hægt er að flokka vistaðar staðsetningar í nokkra flokka, svo sem viðskipti, og
bæta þar við öðrum upplýsingum, t.d. heimilisföngum. Hægt er að nota vistuð
leiðarmerki í samhæfum forritum, svo sem GPS-gögnum.
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>