Öryggi tenginga
Ef öryggisvísirinn birtist á meðan tenging er virk er gagnasendingin á milli tækisins
og netgáttarinnar eða miðlarans dulkóðuð.
Öryggistáknið sýnir ekki öryggi gagnasendingar milli gáttarinnar og efnisþjónsins (þar
sem gögnin eru geymd). Þjónustuveitan tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar og
efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg fyrir tiltekna þjónustu, líkt og bankaþjónustu.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef tækið inniheldur ekki er rétt
öryggisvottorð. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir
fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn verður að vera með rétt,
sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin
tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki tekið gildi“
birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning
sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga um að örugglega megi
treysta eiganda þess og að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
82 Internet