
Smáforrit
Smáforrit færa þér meira efni í tækið þitt! Smáforrit eru lítil vefforrit sem hægt er að
hlaða niður og flytja margmiðlunarefni, fréttastrauma og aðrar upplýsingar, svo sem
veðurfréttir, í tækið. Uppsett smáforrit birtast sem sérstök forrit í forritamöppunni.
Hægt er að hlaða niður græjum af netinu.
Einnig er hægt að setja upp smáforrit á samhæfu minniskorti (ef það er til staðar).
Sjálfgefinn aðgangsstaður fyrir smáforrit er hinn sami og í vafranum. Sum smáforrit
geta uppfært upplýsingar í tækinu sjálfkrafa ef þau eru virk í bakgrunninum.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar að nota
smáforrit. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.