Nokia E52 - Klippa mynd

background image

Klippa mynd

Mynd er klippt með því að velja

Valkostir

>

Nota áhrif

>

Skurður

eða tiltekið hlutfall

af listanum. Til að klippa mynd velurðu

Handvirkt

.

Ef þú velur

Handvirkt

birtist kross efst í vinstra horni myndarinnar. Notaðu

skruntakkann til að velja svæðið sem á að klippa og veldu

Festa

. Annar kross birtist

neðst í hægra horninu. Veldu aftur svæðið sem á að klippa. Til að stilla aftur fyrsta svæðið

skaltu velja

Til baka

. Þau svæði sem eru valin mynda ferhyrning utan um þá mynd sem

kemur út úr klippingunni.

Ef þú velur hlutfall skaltu velja efra hornið til vinstri þar sem á að klippa. Notaðu

skruntakkann til að stilla auðkennda svæðið. Hægt er að frysta valið svæði með því að

ýta á skruntakkann. Hægt er að færa til svæðið með skruntakkanum. Ýttu á

skruntakkann til að velja svæðið sem á að klippa.