Nokia E52 - Myndskeiðin mín

background image

Myndskeiðin mín

Myndskeiðin mín er geymslustaður fyrir öll myndskeið í myndveituforritinu. Hægt er að

flokka myndskeið sem hefur verið hlaðið niður og myndskeið sem tekin hafa verið með

myndavél tækisins, í sérstökum skjágluggum.
1 Til að opna möppu og skoða myndskeið skaltu nota skruntakkann. Til að stjórna

myndspilaranum þegar myndskeiðið er spilað skaltu nota skruntakkann og

miðlunartakkana.

2 Hljóðstyrknum er breytt með því að ýta á hljóðstyrkstakkann.
Veldu

Valkostir

og svo úr eftirfarandi:

Halda niðurhali áfram — Halda niðurhali áfram sem hlé hefur verið gert á eða sem

hefur mistekist.

Hætta við niðurhal — Hætta við niðurhal.

Um hreyfimynd — Skoða upplýsingar um myndskeið.

Leita — Leita að myndskeiði. Sláðu inn leitarorð sem samsvarar skráarheitinu.

Sýna á heimaneti — Spila myndskeið sem hlaðið hefur verið niður í heimakerfinu.

Stilla verður heimakerfið áður.

Minnisstaða — Til að sjá hversu mikið minni er laust og hversu mikið er í notkun.

Raða eftir — Raða myndskeiðum. Veldu viðeigandi flokk.

Færa og afrita — Færa eða afrita myndskeið. Veldu

Afrita

eða

Færa

og staðsetningu.