Skoðun og niðurhal myndskeiða
Tenging við kvikmyndaveitu
1 Veldu
Valmynd
>
Miðlar
>
Kvikm.banki
.
2 Til að tengjast þjónustu eða setja upp myndefnisþjónustu velurðu
Bæta við nýrri
þjónustu
og myndefnisþjónustu af vörulistanum.
Myndskeið skoðað
Til að skoða efnið sem þjónustan býður upp á skaltu velja
Myndstraumar
.
Efni sumra myndefnisþjónusta er raðað í flokka. Veldu flokk til að skoða myndskeið.
Hægt er að leita að myndskeiðum í þjónustunni með því að velja
Leita að
myndskeiðum
. Ekki er víst að allar þjónustur bjóði upp á leit.
Hægt er að straumspila sumar hreyfimyndir en hlaða þarf öðrum niður í tækið til að
hægt sé að spila þær. Veldu
Valkostir
>
Sækja
til að hlaða niður hreyfimynd. Niðurhal
heldur áfram í bakgrunninum ef forritinu er lokað. Myndskeið sem hlaðið er niður eru
vistuð í Myndskeiðin mín.
Til að straumspila myndskeið eða skoða mynd sem hefur verið hlaðið niður velurðu
Valkostir
>
Spila
.
Miðlar 127
Hægt er að stjórna spilaranum með valtökkum hans og skruntakkanum meðan
myndskeið er spilað.
Notaðu á hljóðstyrkstakkann til að stilla hljóðstyrkinn.
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum
hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á hátölurunum.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Halda niðurhali áfram — Halda niðurhali áfram sem hlé hefur verið gert á eða sem
hefur mistekist.
Hætta við niðurhal — Hætta við niðurhal.
Sýnishorn — Forskoða myndskeið. Þessi valkostur er í boði ef þjónustuveitan styður
hann.
Um hreyfimynd — Skoða upplýsingar um myndskeið.
Uppfæra lista — Uppfæra lista yfir myndskeið.
Opna tengil í vafra — Opna tengil í vafranum.
Niðurhal tímasett
Ef forritið er stillt þannig að það sæki myndskeið sjálfkrafa getur slíkt falið í sér stórar
gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar. Hafðu samband við
þjónustuveituna til að fá frekari upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.
Hægt er að tímasetja sjálfvirkt niðurhal myndskeiða í þjónustu með því að velja
Valkostir
>
Áætluð niðurhöl
.
Video centre hleður daglega niður nýjum myndskeiðum sjálfvirkt á þeim tíma sem þú
tilgreinir.
Til að hætta við tímasett niðurhal skaltu velja
Handvirkt niðurhal
.