Nokia E52 - Myndskeið og straumspilun

background image

Myndskeið og straumspilun

Til að spila myndskeið velurðu

Myndskeið

og svo myndskeið.

Á aðalskjá forritsins velurðu

Nýlega spilað

til að sýna skrár voru spilaðar nýlega.

Til að straumspila efni (sérþjónusta) velurðu

Straumsp.tengl.

og tengil. RealPlayer

þekkir tvær gerðir tengla: rtsp:// og http:// slóðir sem vísa í RAM-skrá. Áður en

straumspilun efnisins hefst þarf tækið þitt að tengjast vefsvæði og vista efnið í biðminni.

Ef vandamál við tengingu valda villu í spilun reynir RealPlayer sjálfkrafa að tengjast aftur

við netaðgangsstaðinn.

Til að hlaða myndskeiðum niður af vefnum velurðu

Sækja myndsk.

.

132 Miðlar

background image

Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stilla hljóðstyrkinn meðan á spilun stendur.

Til að spóla áfram á meðan spilað er skaltu fletta til hægri og halda inni takkanum. Til

að spóla til baka á meðan spilað er skaltu fletta til vinstri og halda takkanum inni.

Til að stöðva spilun eða straumspilun velurðu

Stöðva

. Vistun í biðminni eða tenging við

straumspilunarstað stöðvast, spilun myndskeiðs stöðvast og myndskeiðið fer aftur á

byrjun.

Til að skoða myndskeiðið á venjulegum skjá velurðu

Valkostir

>

Áfram á venjulegum

skjá

.