Dagbókaratriði búin til
Veldu
Valmynd
>
Dagbók
.
Hægt er að búa til eftirfarandi gerðir dagbókaratriða:
•
Fundaratriði minna á atburði með ákveðna dag- og tímasetningu.
•
Fundarboð eru boð sem þú getur sent til þátttakenda. Áður en hægt er að búa til
fundarbeiðnir verður samhæft pósthólf að vera uppsett á símanum.
•
Minnisatriði varða allan daginn og ekki tiltekinn tíma hans.
•
Afmælisfærslur minna þig á afmælisdaga og sérstakar dagsetningar. Þær varða
allan daginn og ekki tiltekinn tíma hans. Færslur fyrir afmælisdaga eru endurteknar
á hverju ári.
•
Verkefni minna á verkefni með lokadagsetningu og ekki með lokatíma.
Til að búa til dagbókaratriði skaltu velja dagsetningu,
Valkostir
>
Nýtt atriði
og gerð
atriðisins.
Veldu
Valkostir
>
Forgangur
til að tilgreina forgang fyrir fundaratriði.
Til að tilgreina hvernig farið er með atriðið í samstillingu velurðu
Einkamál
til að fela
atriðið fyrir öðrum ef dagbókin er tiltæk á netinu,
Almennt
til að sýna atriðið öðrum
eða
Ekkert
til að afrita atriðið ekki yfir á tölvuna.
Veldu
Valkostir
>
Senda
til að senda atriðið til samhæfs tækis.
Til að búa til fundarboð úr fundaratriði velurðu
Valkostir
>
Bæta við öðrum
þátttak.
.