Helstu eiginleikar
Nýja Nokia E52 auðveldar þér að hafa umsjón með vinnuupplýsingum þínum og
persónuupplýsingum. Sumir af helstu eiginleikunum eru tilgreindir hér:
Lestu og svaraðu tölvupósti á ferðinni.
Vertu vel upplýst(ur) og skipuleggðu fundi með dagbókarforritinu.
Skipuleggðu vinnufélagana þína og vini með tengiliðaforritinu.
Nýjungar í Nokia Eseries 35
Tengstu þráðlausu staðarnetni (WLAN) með staðarnetshjálpinni.
Sýslaðu með skjöl, töflureikni og kynningar með Quickoffice forritinu.
Finndu áhugaverða staði með kortaforritinu.
Skiptu á milli vinnu- og persónustillinga.
Breyttu útliti og uppsetningu heimaskjásins með stillingaforritinu.
Skoðaðu innra net fyrirtækisins með innranetsforritinu.
Færðu tengiliðaupplýsingar og upplýsingar í dagbók úr eldra tæki yfir í
Nokia E52 með skiptingarforritinu.
Kannaðu hvaða uppfærslur eru í boði og sæktu þær í tækið með
forritauppfærslum.
Dulkóðaðu tækið þitt eða minniskortið til að koma í veg fyrir að
utanaðkomandi aðilar komist yfir mikilvægar upplýsingar.