Skipt milli forrita
Hægt er að hafa nokkur forrit opin á sama tíma. Skipt er á milli opinna forrita með því
að halda inni heimatakkanum, fletta að forriti og ýta á skruntakkann. Völdu forriti er
lokað með því að ýta á bakktakkann.
Dæmi: Þegar símtal er í gangi og þú þarft að opna dagbókina þína skaltu ýta á
heimatakkann til að opna valmyndina og opna dagbókina þaðan. Símtalið er áfram í
gangi í bakgrunninum.
Dæmi: Þegar þú skrifar skilaboð og vilt opna vefsíðu skaltu ýta á heimatakkann til að
opna valmyndina og opna vefforritið þaðan. Veldu bókamerki eða annað veffang
handvirkt og svo
Opna
. Til að fara aftur í skilaboðin þín heldurðu inni heimatakkanum,
flettir að skilaboðum og ýtir á skruntakkann.