Skjávísar
Tækið er notað í UMTS-símkerfi (sérþjónusta).
Hleðsla rafhlöðunnar. Því hærri sem stikan er, því meiri er hleðsla
rafhlöðunnar.
Ein eða fleiri skilaboð eru ólesin í möppunni Innhólf í Skilaboð.
Nýr tölvupóstur hefur borist í ytra pósthólfið.
Það eru ósend skilaboð í möppunni Úthólf í Skilaboðum.
Einu eða fleiri símtölum var ekki svarað.
Takkar tækisins eru læstir.
Vekjaraklukkan mun hringja.
Sniðið Án hljóðs hefur verið valið sem þýðir að tækið hringir ekki þegar
hringt er í þig eða þú færð skilaboð.
Bluetooth-tenging er virk.
Bluetooth-tengingu hefur verið komið á. Þegar vísirinn blikkar er tækið að
reyna að tengjast við annað tæki.
26 Nokia E52 – Helstu aðgerðir
GPRS-pakkagagnatenging er tiltæk (sérþjónusta). sýnir að tengingin sé
virk og að tenging sé í bið.
EGPRS-pakkagagnatenging er tiltæk (sérþjónusta). sýnir að tengingin sé
virk og að tenging sé í bið.
UMTS-pakkagagnatenging er tiltæk (sérþjónusta). sýnir að tengingin sé
virk og að tenging sé í bið.
Háhraða pakkagagnaaðgangur (HSPA) er studd og til staðar (sérþjónusta).
Táknið getur verið breytilegt á milli svæða. sýnir að tengingin sé virk og
að tenging sé í bið.
Tækið hefur verið stillt á að leita að þráðlausum staðarnetum (WLAN) og er
nú hægt að koma á tengingu við slíkt net.
Tækið er tengt við ódulkóðað WLAN.
Tækið er tengt við dulkóðað WLAN.
Tækið er tengt við tölvu um USB-gagnasnúru.
Símalína 2 er í notkun (sérþjónusta).
Öll símtöl eru flutt í annað númer. Ef notaðar eru tvær símalínur sýnir númer
hvaða lína er í notkun.
Höfuðtól er tengt við tækið.
Handfrjáls bílbúnaður er tengdur við tækið.
Hljóðmöskvi er tengdur við tækið.
Textasími er tengdur við tækið.
Samstilling er í gangi í tækinu.
Nokia E52 – Helstu aðgerðir 27
Kveikt er á kallkerfistengingu (PTT).
Kallkerfistenging er stillt á 'Truflið ekki' vegna þess að gerð hringingar er
stillt á
Pípa einu sinni
eða
Án hljóðs
, eða þá að símtal er í gangi. Ekki er
hægt að hringja kallkerfissímtöl þegar þessi stilling er valin.