Valmynd
Veldu
Valmynd
.
Valmyndin er upphafsstaður þar sem þú getur opnað öll forrit í tækinu eða á minniskorti.
Valmyndin inniheldur forrit og möppur, þar sem er að finna forrit af svipaðri gerð. Öll
forrit sem þú setur upp í tækinu eru sjálfkrafa vistuð í möppunni Forrit.
Forrit er opnað með því að velja það, þ.e. fletta að því og ýta á skruntakkann.
Hægt er að skipta á milli opinna forrita með því að halda inni heimatakkanum og velja
forrit.
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma
rafhlöðunnar.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Nokia E52 – Helstu aðgerðir 25
Skipta um útlit — Skoða forrit í lista eða töflu.
Um minni — Sjá hversu mikið minni mismunandi forrit og gögn taka í innra minni
tækisins eða á minniskorti og hversu mikið minni er laust.
Ný mappa — Búa til nýja möppu.
Endurnefna — Breyta heiti nýrrar möppu.
Færa — Endurraða í möppu. Flettu að forritinu sem þú vilt færa og veldu
Færa
. Merki
er sett til hliðar við forritið. Flettu að nýju staðsetningunni og veldu
Í lagi
.
Færa í möppu — Færa forrit í aðra möppu. Flettu að forritinu sem þú vilt færa og veldu
Færa í möppu
, nýju möppuna og
Í lagi
.
Sækja forrit — Sækja forrit á netinu.