Reiknivél
Veldu
Valmynd
>
Skrifstofa
>
Reiknivél
.
Nákvæmni reiknivélarinnar er takmörkuð og hún er ætluð til einfaldra útreikninga.
Til að reikna skaltu slá inn fyrstu töluna í útreikningnum. Veldu valkost af
aðgerðakortinu, til dæmis samlagningu eða frádrátt. Sláðu inn aðra tölu útreikningsins
og veldu =. Reiknivélin reiknar tölur í þeirri röð sem þær eru slegnar inn. Útkoman birtist
á skjánum og hægt er að nota hana sem fyrstu töluna í nýjum útreikningi.
Tækið vistar niðurstöðu síðasta útreiknings í minni sínu. Talan er áfram í minninu þó
svo að forritinu sé lokað eða slökkt sé á tækinu. Hægt er að sækja vistuðu niðurstöðuna
næst þegar reiknivélin er opnuð með því að velja
Valkostir
>
Síðasta útkoma
.
Til að vista útreikninginn velurðu
Valkostir
>
Minni
>
Vista
.
Til að sækja niðurstöðu úr útreikningi í minnið og nota í öðrum útreikningi velurðu
Valkostir
>
Minni
>
Úr minni
.