Nokia E52 - Sérsníða snið

background image

Sérsníða snið

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Snið

.

Veldu

Valkostir

>

Sérsníða

og svo úr eftirfarandi:

Hringitónn — Velja hringitón af listanum eða velja

Sækja tóna

til að opna

bókamerkjamöppu með lista yfir bókamerki til að hlaða niður hringitónum með

vafranum. Ef þú ert með tvær símalínur getur þú notað mismunandi hringitón fyrir hvora

línu.

Hringitónn myndsímtala — Veldu hringitón fyrir myndsímtöl.

32 Sérstillingar

background image

Segja nafn hringjanda — Ef þetta er valið og einhver á tengiliðalistanum hringir í þig

heyrist hringitónn í símanum sem er sambland af upplestri á nafni tengiliðarins og

hringitóninum sem þú valdir.

Gerð hringingar — Veldu hvernig hringitónninn á að heyrast.

Hljóðstyrkur hringingar — Stilltu hljóðstyrk hringitónsins.

Skilaboðatónn — Veldu tón fyrir móttekin textaskilaboð.

Tölvupóststónn — Veldu tón fyrir móttekin tölvupóstskeyti.

Varar við með titringi — Láta tækið titra við símhringingu eða skilaboð.

Takkatónar — Veldu hljóðstyrk takkatónanna.

Aðvörunartónar — Slökktu á viðvörunartónum. Þessi stilling hefur einnig áhrif á tóna

einhverra leikja og Java™-forrita.

Gera viðvart um — Stilla tækið þannig að það hringi aðeins þegar um er að ræða

símanúmer í ákveðnum viðmælendahópi. Enginn hringitónn heyrist ef fólk utan þess

hóps hringir.

Hringitónn Kallkerfis — Veldu hringitón fyrir kallkerfissímtöl.

Staða Kallkerfis — Stilltu kallkerfisstöðu hvers sniðs.

Nafn sniðs — Þú getur búið til nýtt snið og gefið því heiti eða endurnefnt snið sem

þegar er til. Sniðunum Almennt og Ótengt er ekki hægt að gefa annað heiti.