Snið
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Snið
.
Þú getur stillt og sérsniðið hringitóna, viðvörunartóna og aðra tóna tækisins fyrir
mismunandi viðburði, umhverfi og viðmælendahópa. Sniðið sem er í notkun sést efst
á heimaskjánum. Ef sniðið Almennt er í notkun birtist aðeins dagsetningin.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja
Valkostir
>
Búa til nýtt
og tilgreina stillingarnar.
Til að laga snið að þínum þörfum velurðu sniðið og svo
Valkostir
>
Sérsníða
.
Til að breyta sniði velurðu sniðið og svo
Valkostir
>
Gera virkt
.
Til að stilla sniðið þannig að það sé virkt í allt að 24 tíma skaltu fletta að sniðinu, velja
Valkostir
>
Tímastillt
og svo tímann. Þegar tíminn er liðinn verður fyrra sniðið sem
var ekki tímastillt virkt aftur. Þegar snið er tímastillt birtist á heimaskjánum. Ekki er
hægt að stilla ótengda sniðið á tíma.
Til að eyða sniði sem þú hefur búið til velurðu
Valkostir
>
Eyða sniði
. Þú getur ekki
eytt forstilltu sniðunum.
Sérstillingar 31
Þegar sniðið Án tengingar er virkt er lokað á tengingu þína við farsímakerfið. Lokað er
á allar sendingar útvarpsmerkja á milli tækisins og farsímakerfisins. Ef þú reynir að
senda skilaboð er það geymt í möppunni úthólf og er einungis sent þegar kveikt er á
öðru sniði.
Hægt er að nota tækið án SIM-korts. Ef þú fjarlægir SIM-kortið verður sniðið Án tengingar
virkt.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota aðra
valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að hringja
í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst að virkja
símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn
lykilnúmerið.
Þegar þú notar sniðið Án tengingar geturðu áfram notað þráðlaust staðarnet, t.d. til
þess að lesa tölvupóst eða vafra á internetinu. Einnig má nota Bluetooth-tengingu.
Mundu að fara að öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á þráðlausri
staðarnetstengingu eða Bluetooth-tengingu.