Sími
Til að hringja og taka á móti símtölum verður að vera kveikt á tækinu, gilt SIM-kort
verður að vera í því og það verður að vera staðsett innan þjónustusvæðis
farsímakerfisins.
Tækið þitt þarf að vera tengt við netsímaþjónustuna til að hægt sé að hringja og svara
netsímtölum. Til að tengjast netsímaþjónustu verður tækið að ná sambandi við netkerfi,
s.s. þráðlaust staðarnet (WLAN).