Útilokanir
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Sími
>
Útilokanir
. Ef þú hefur tilgreint
stillingar fyrir netsímtöl velurðu
Útilokun netsímtala
.
Hægt er að loka fyrir símtöl úr tækinu og móttöku símtala (sérþjónusta). Til að breyta
stillingunum þarftu útilokunarlykilorð frá þjónustuveitunni þinni. Útilokanir hafa áhrif
á allar gerðir símtala.
Veldu milli eftirfarandi stillinga fyrir útilokanir símtala.
Úthringingar — Lokar fyrir símtöl úr tækinu.
Innhringingar — Lokar fyrir móttekin símtöl.
Millilandasímtöl — Lokar fyrir símtöl til útlanda.
Móttekin símtöl í reiki — Lokar fyrir móttekin símtöl þegar þú ert erlendis.
Símtöl til útlanda fyrir utan heimaland — Lokar fyrir símtöl til útlanda en leyfir símtöl
til heimalands þíns.
Til að sjá stöðuna á útilokun símtala velurðu valkost útilokunar og svo
Valkostir
>
Athuga stöðu
.
68 Sími
Til að slökkva á útilokun símtala velurðu valkost útilokunar og svo
Valkostir
>
Ógilda
allar útilokanir
.
Til að breyta lykilorðinu sem er notað til að loka fyrir raddsímtöl og faxsendingar velurðu
Valkostir
>
Breyta lykilorði útilok.
. Sláðu inn núverandi númer og síðan nýja númerið
tvisvar. Lykilorð útilokunar verður að vera fjórir stafir að lengd. Nánari upplýsingar má
fá hjá þjónustuveitunni.