Um kallkerfið
Kallkerfi (PTT) (sérþjónusta) er rauntíma talsímaþjónusta sem notar farsímakerfið.
Kallkerfi býður upp á bein samskipti sem komið er á með því að ýta á takka. Notaðu
kallkerfið til að tala við einn aðila eða hóp af fólki.
Áður en kallkerfið er tekið í notkun þarf að tilgreina stillingar fyrir það (aðgangsstað,
PTT, SIP, XDM og viðveru). Stillingarnar kunna að berast í sérstökum textaskilaboðum
frá þjónustuveitunni sem býður upp á kallkerfisþjónustuna. Einnig er hægt að nota
stillinga-hjálparforritið til að stilla kallkerfið ef þjónustuveitan styður slíkt. Nánari
upplýsingar um kallkerfisforritið er að finna í notendahandbók tækisins eða á vefsvæði
Nokia í heimalandi þínu.
Í samskiptum gegnum kallkerfið talar einn aðili en hinir hlusta gegnum innbyggða
hátalarann.
Notendur skiptast á að svara hver öðrum. Þar sem aðeins einn aðili getur talað í einu
fær hann tiltekinn hámarkstíma. Hámarkstíminn er venjulega 30 sekúndur. Hafðu
samband við þjónustuveituna til að fá upplýsingar um hvaða hámarkstíma símkerfið
veitir.
Símtöl hafa ávallt forgang fram yfir kallkerfi.