Myndsímtali komið á
Til að hringja myndsímtal skaltu slá inn símanúmerið eða velja viðtakanda af
tengiliðalistanum og
Valkostir
>
Hringja
>
Myndsímtal
. Slökkt er á myndavél
tækisins þegar myndsímtalinu er komið á. Slökkt er á myndsendingum ef myndavélin
er þegar í notkun. Ef viðtakandi símtalsins vill ekki senda þér hreyfimynd birtist
kyrrmynd í stað hennar. Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Sími
>
Símtöl
>
Mynd í myndsímtali
til að velja kyrrmynd sem er send úr tækinu í stað hreyfimyndar.
Til að slökkva á sendingu hljóða, hreyfimynda eða hreyfimynda og hljóða velurðu
Valkostir
>
Óvirkja
>
Hljóð
,
Hreyfimynd
eða
Hljóð & myndskeið
.
Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stilla hljóðstyrk myndsímtals sem er í gangi.
Til að nota hátalara velurðu
Valkostir
>
Virkja hátalara
. Til að slökkva á hátalaranum
og nota símtólið velurðu
Valkostir
>
Virkja símtól
.
Til að víxla myndum velurðu
Valkostir
>
Víxla myndum
.
Til að stækka myndina á skjánum velurðu eða
Valkostir
>
Aðdráttur
og flettir upp eða
niður.
Til að ljúka myndsímtalinu og koma á venjulegu símtali við sama viðmælanda velurðu
Valkostir
>
Skipta yfir í raddsímtal
.