Nokia E52 - Samnýting hreyfimynda

background image

Samnýting hreyfimynda

Notaðu samnýtingu hreyfimynda (sérþjónusta) til að senda rauntíma hreyfimynd eða

myndskeið úr tækinu í samhæft farsímatæki meðan á símtali stendur.
Kveikt er á hátalaranum þegar kveikt er á samnýtingu hreyfimynda. Ef þú vilt ekki nota

hátalarann í símtölum á meðan hreyfimyndir eru samnýttar má einnig nota samhæft

höfuðtól.

62 Sími

background image

Viðvörun:

Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum

hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á hátölurunum.