Samnýting hreyfimynda og myndskeiða
Meðan á símtali stendur skaltu velja
Valkostir
>
Samnýta hreyfimynd
.
1 Til að samnýta rauntímahreyfimynd í símtalinu skaltu velja
Í beinni
.
Til að samnýta myndskeið skaltu velja
Myndskeið
og myndskeiðið sem þú vilt
samnýta.
Svo hægt sé að samnýta myndskeiðið gæti þurft að breyta því í annað snið. Ef tækið
tilkynnir um að það þurfi að umbreyta myndskeiðinu skaltu velja
Í lagi
. Tækið þarf
að hafa klippiforrit til að hægt sé að umbreyta.
2 Ef viðtakandinn er með nokkur SIP-vistföng eða símanúmer með landsnúmeri vistuð
í tengiliðalistanum, skaltu velja það vistfang eða númer sem þú vilt. Ef SIP-vistfang
eða símanúmer viðtakandans er ekki tiltækt skaltu slá inn vistfang viðtakandans
eða númerið ásamt landsnúmeri og velja síðan
Í lagi
til að senda boðið. Tækið
sendir boðið til SIP-vistfangsins.
Samnýtingin hefst sjálfkrafa þegar viðmælandinn samþykkir boðið.
Valkostir þegar myndskeið er samnýtt
Auka eða minnka aðdrátt (stendur aðeins sendanda til boða).
Stilla birtustig (stendur aðeins sendanda til boða).
eða
Kveikja eða slökkva á hljóðnemanum.
eða
Kveikja eða slökkva á hátalaranum.
eða
Gera hlé á og halda samnýtingu hreyfimynda áfram.
Sýna á öllum skjánum (stendur aðeins viðtakanda til boða).
3 Veldu
Stöðva
til að ljúka samnýtingunni. Til að rjúfa símtal skal ýta á hætta-takkann.
Þegar símtali er slitið er samnýting mynda einnig rofin.
Til að vista samnýttu hreyfimyndina skaltu velja
Já
þegar beðið er um það. Tækið lætur
þig vita af því í hvaða minni hreyfimyndin er vistuð. Til að tilgreina minni velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
Samn. hreyfim.
>
Minni fyrir
vistun
.
Ef önnur forrit eru notuð meðan á samnýtingu hreyfimyndar stendur er samnýtingin
sett í bið. Til að fara til baka á skjáinn fyrir samnýtingu hreyfimyndar og halda
samnýtingu áfram skaltu velja
Valkostir
>
Áfram
á heimaskjánum.
64 Sími