Nokia E52 - Stillingar

background image

Stillingar

Til að koma á samnýtingu hreyfimynda þarf P2P- og 3G-tengistillingar.
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga

Tenging á milli einstaklinga er einnig þekkt undir heitinu SIP-tenging (Session Initiation

Protocol). SIP-sniðstillingar þurfa að hafa verið valdar í tækinu áður en þú getur notað

samnýtingu hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að

vista þær í tækinu. Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar eða gefið þér upp

nauðsynlegar stillingar.
Til að setja SIP-vistfang á tengiliðaspjald:
1 Veldu >

Tengiliðir

.

2 Opnaðu tengiliðaspjaldið (eða búðu til nýtt spjald fyrir viðkomandi).

3 Veldu

Valkostir

>

Bæta við upplýsingum

>

Samnýta hreyfimynd

.

4 Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-tölu

í stað vistfangs).

Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu notað símanúmer hans, ásamt

landsnúmerinu (t.d. +354), til að samnýtia hreyfimyndir (ef þjónustuveitan styður

það).

Sími 63

background image

3G-tengistillingar

Til að koma á 3G-tengingu:

Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að fá samning um notkun 3G-símkerfis.

Gakktu úr skugga um að 3G-aðgangsstaðastillingarnar í tækinu hafi verið rétt

valdar.