Nokia Messaging
Nokia Messaging þjónustan sendir sjálfkrafa tölvupóst úr netfangi þínu á Nokia E52.
Hægt er að lesa, svara og skipuleggja tölvupóstinn á ferðinni. Nokia Messaging
þjónustuna má nota með mörgum algengum tölvupóstveitum á netinu, svo sem
tölvupóstþjónustu Google.
Mögulega er tekið gjald fyrir Nokia Messaging. Hafðu samband við þjónustuveituna eða
Nokia Messaging þjónustuna til að fá upplýsingar um hugsanlegan kostnað.
Símkerfið verður að styðja Nokia Messaging og er hugsanlega ekki aðgengileg á öllum
svæðum.
Uppsetning á Nokia Messaging forritinu
1 Veldu
Valmynd
>
Tölvupóstur
og
Nýtt pósthólf
.
2 Lestu upplýsingarnar á skjánum og veldu
Byrja
.
3 Veldu
Tengja
til að leyfa tækinu að tengjast internetinu.
4 Færðu inn tölvupóstfangið þitt og lykilorð.
Nota má Nokia Messaging þjónustuna á tækinu jafnvel þótt þú hafir sett upp annað
tölvupóstforrit á borð við Mail for Exchange.