Nokia E52 - Stillingar margmiðlunarskilaboða

background image

Stillingar margmiðlunarskilaboða

Veldu

Valmynd

>

Skilaboð

og

Valkostir

>

Stillingar

>

Margmiðlunarboð

.

Veldu úr eftirfarandi:

Stærð myndar — Breyta stærð mynda í margmiðlunarskilaboðum.

MMS-gerð — Veldu

Takmörkuð

til að láta tækið hindra þig í að setja efni inn í

margmiðlunarskilaboð sem símkerfið eða móttökutækið styður ekki. Til að fá sendar

viðvaranir þegar slíkt efni er innifalið, skaltu velja

Með viðvörunum

. Til að búa til

margmiðlunarskilaboð án nokkurra takmarkana á gerð viðhengis skaltu velja

Allt

. Ef þú

velur

Takmörkuð

getur þú ekki búið til margmiðlunarkynningar.

Aðg.staður í notkun — Veldu sjálfgefna aðgangsstaðinn sem er notaður til að tengjast

við miðstöð margmiðlunarskilaboða. Ef þjónustuveitan hefur forstillt sjálfgefna

aðgangsstaðinn er ekki víst að hægt sé að breyta honum.

Móttaka margmiðlunar — Veldu hvernig þú vilt taka á móti skilaboðum, ef sú

þjónusta er í boði. Veldu

Alltaf sjálfvirk

til að fá margmiðlunarskilaboð alltaf send

sjálfkrafa,

Sjálfv. í heimakerfi

til að fá tilkynningu um ný margmiðlunarskilaboð sem

hægt er að sækja frá skilaboðamiðstöðinni (til dæmis á ferðalögum erlendis eða utan

heimasímkerfis),

Handvirkt val

til að sækja margmiðlunarskilaboð alltaf handvirkt, eða

Óvirk

til að loka fyrir móttöku margmiðlunarskilaboða. Ekki er víst að sjálfvirk móttaka

sé í boði á öllum svæðum.

Leyfa nafnlaus skilaboð — Taka við skilaboðum frá óþekktum sendendum.

Fá auglýsingar — Taka við skilaboðum sem eru skilgreind sem auglýsingar.

Fá tilkynningar — Hægt er að biðja um staðfestingu á því að skilaboð hafi verið

móttekin og/eða lesin (sérþjónusta). Ekki er víst að hægt sé að fá skilatilkynningar fyrir

margmiðlunarskilaboð sem eru send á tölvupóstfang.

Neita sendingu tilk. — Veldu

ef þú vilt ekki að tækið sendi skilatilkynningar fyrir

móttekin margmiðlunarskilaboð.

Gildistími skilaboða — Veldu hversu lengi skilaboðamiðstöðin á að reyna að senda

skilaboðin (sérþjónusta). Ef ekki tekst að ná í viðtakanda skilaboða innan þessa tíma

verða skilaboðin fjarlægð úr miðstöð margmiðlunarskilaboða.

Hámarkstími

er mesti

tíminn sem símkerfið leyfir.
Símkerfisstuðningur þarf að vera fyrir hendi til að hægt sé að fá staðfestingu á því hvort

send skilaboð hafi verið móttekin eða lesin. Hugsanlega er þessar upplýsingar ekki alltaf

áreiðanlegar, það fer eftir símkerfinu og öðrum aðstæðum hverju sinni.