Uppsetning á tölvupósti
Með tölvupóstuppsetningunni geturðu sett upp fyrirtækispósthólf, t.d. Mail for
Exchange og netpósthólf.
Þegar fyrirtækjapósturinn þinn er settur upp gætir þú verið beðin(n) um heiti miðlarans
sem tengist tölvupóstfanginu þínu. Hafðu samband við tölvudeild fyrirtækisins þíns til
að fá frekari upplýsingar.
1 Til að opna uppsetninguna velurðu
Setja upp tölvupóst
á heimaskjánum.
2 Færðu inn tölvupóstfangið þitt og lykilorð. Ef ekki er hægt að stilla tölvupóstinn
sjálfkrafa í uppsetningunni þarftu að velja gerð pósthólfsins og færa inn
pósthólfsstillingar.
Ef tækið inniheldur fleiri tölvupóstbiðlara geturðu valið þá þegar þú ræsir
póstuppsetninguna.