Nokia E52 - Texta- og margmiðlunarskilaboð

background image

Texta- og margmiðlunarskilaboð

Veldu

Valmynd

>

Skilaboð

.

Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð.

Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.
Margmiðlunarskilaboð (MMS) geta innihaldið texta, myndir, hljóð og myndskeið. Áður

en þú getur sent eða tekið á móti margmiðlunarskilaboðum með tækinu þínu þarftu að

færa inn réttar stillingar fyrir margmiðlunarskilaboð. Tækið gæti borið kennsl á

söluaðila SIM-kortsins og fært sjálfkrafa inn réttar stillingar fyrir margmiðlunarskilaboð.

Ef svo er ekki skaltu hafa samband við þjónustuveituna þína til að fá réttar stillingar,

panta stillingarnar hjá þjónustuveitunni í stillingaboðum, eða nota stillingaforritið.