Margmiðlunarskilaboð móttekin og þeim svarað
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta innihaldið
skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
Ábending: Ef þú færð margmiðlunarskilaboð sem innihalda hluti sem tækið þitt styður
ekki, er ekki hægt að opna þau. Reyndu að senda þessa hluti til annars tækis, til dæmis
tölvu, og opna þá þar.
1 Til að svara margmiðlunarskilaboðum skaltu opna skilaboðin og velja
Valkostir
>
Svara
.
2 Veldu
Sendanda
til að svara sendanda,
Öllum
til að senda svar á alla viðtakendur
skilaboðanna,
Sem hljóðskilaboð
til að svara með hljóðskilaboðum eða
Með
tölvupósti
til að svara með tölvupósti. Til þess að hægt sé að svara með tölvupósti
verður pósthólf að hafa verið sett upp og senda verður skilaboðin frá netfangi.
3 Sláðu inn texta skilaboðanna og veldu
Valkostir
>
Senda
.