Ritun og sending skilaboða
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta innihaldið
skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð eða skrifað tölvupóst verða réttar
tengistillingar að vera fyrir hendi.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt er inn
fer yfir þessi mörk gæti tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með
MMS.
Athugaðu stærðartakmörk tölvupóstskeyta hjá þjónustuveitunni. Ef þú reynir að senda
tölvupóst sem er yfir mörkum tölvupóstmiðlarans eru skilaboðin áfram í möppunni
Úthólf og tækið reynir reglulega að senda þau. Gagnatenging er nauðsynleg til að senda
tölvupóst og endurteknar tilraunir til að senda tölvupóst kunna að auka kostnað vegna
50 Skilaboð
gagnaflutnings. Hægt er að eyða slíkum skilaboðum í möppunni Úthólf eða færa þau
yfir í möppuna Drög.
1 Veldu
Ný skilaboð
>
Skilaboð
til að senda textaskilboð eða margmiðlunarboð
(MMS),
Hljóðskilaboð
til að senda margmiðlunarboð sem innihalda eitt
hljóðinnskot, eða
Tölvupóst
til að senda tölvupóst.
2 Í reitnum Til skaltu ýta á skruntakkann til að velja viðtakendur eða hópa af
tengiliðalistanum, eða slá inn símanúmer eða netfang viðtakandans. Semíkomma
(;) sem skilur að viðtakendur er sett inn með því að ýta á *. Einnig er hægt að afrita
og líma númer eða tölvupóstföng af klemmuspjaldinu.
3 Færðu titil tölvupóstskeytisins inn í reitinn Efni. Hægt er að breyta því hvaða reitir
eru sýnilegir með því að velja
Valkostir
>
Skilaboðahausar
.
4 Skilaboðin eru skrifuð í skilaboðareitinn. Til að setja inn sniðmát eða athugasemd
skaltu velja
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja inn texta
>
Sniðmát
eða
Minnismiða
.
5 Til að bæta skrá við margmiðlunarskilaboð velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
,
skráagerðina eða slóðina og sjálfa skrána. Til að láta nafnspjald, skyggnu,
athugasemd eða einhverja aðra skrá fylgja skilaboðunum velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja inn annað
.
6 Til að taka mynd eða taka upp hljóð eða myndskeið fyrir margmiðlunarboð velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja inn mynd
>
Nýja
,
Setja inn myndskeið
>
Nýtt
eða
Setja inn hljóð
>
Nýtt
.
7 Sérstafir eru settir inn með því að ýta á * og velja
Fleiri tákn
og tákn.
8 Til að slá inn broskarl ýtirðu á *, velur
Fleiri broskarlar
og broskarl.
9 Til að setja viðhengi í tölvupóst velurðu
Valkostir
og tegund viðhengis. Viðhengi í
tölvupósti eru auðkennd með .
10 Veldu
Valkostir
>
Senda
eða ýttu á hringitakkann til að senda skilaboðin.
Til athugunar: Táknið um að skilaboð hafi verið send, eða texti sem birtist á skjá
tækisins, merkir ekki að viðtakandinn hafi fengið skilaboðin.
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri skilaboð
eru send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi
við það. Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða valkosti sumra tungumála taka meira
pláss og takmarka þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum skilaboðum.
Ekki er víst að hægt sé að senda myndskeið sem eru vistuð á MP4-sniði eða sem fara yfir
leyfilega stærð margmiðlunarboða á símkerfinu.