
Ítarlegar stillingar fyrir þráðlaus staðarnet
Veldu
Valkostir
>
Frekari stillingar
. Ítarlegri stillingar þráðlauss staðarnets eru
vanalega tilgreindar sjálfkrafa og ekki er mælt með því að breyta þeim.
Til að breyta stillingum handvirkt skaltu velja
Sjálfvirk stilling
>
Slökkt
og tilgreina
eftirfarandi:
Langur senditími — Sláðu inn hámarksfjölda senditilrauna ef tækið fær ekki
staðfestingarmerki móttöku frá netinu.
Stuttur senditími — Sláðu inn hámarksfjölda senditilrauna ef tækið fær ekki merki
um að hægt sé að senda frá netinu.
RTS þröskuldur — Veldu pakkastærðina sem skal ná áður en aðgangsstaðurinn fyrir
þráðlausa staðarnetið gefur út beiðni um sendingu áður en pakkinn er sendur.
TX orkustig — Veldu orkustig tækisins þegar gögn eru send.
Útvarpsbylgjur — Gerðu útvarpsmælingar virkar eða óvirkar.
Orkusparnaður — Veldu hvort nota eigi rafhlöðusparnað WLAn til að spara rafhlöðu
tækisins. Notkun sparnaðarins eykur endingartíma rafhlöðunnar en notkun WLAN
versnar.
Til að núllstilla allt velurðu
Valkostir
>
Sjálfgefnar stillingar
.