Nokia E52 - Aðgangsstaðahópar búnir til

background image

Aðgangsstaðahópar búnir til

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Nettengileiðir

.

Í sumum forritum er hægt að nota aðgangsstaðahópa til að nettengjast.
Til að þurfa ekki að velja hvaða aðgangsstað á að nota í hvert sinn sem tækið reynir að

nettengjast er hægt að búa til hóp sem inniheldur ýmsa aðgangsstaði og tilgreina í

hvaða röð á að nota aðgangsstaðina til að nettengjast.
Til dæmis er hægt að bæta aðgangsstöðum fyrir þráðlaust staðarnet og pakkagögn við

aðgangsstaðahópinn og nota hópinn til að vafra á netinu. Ef aðgangsstaður fyrir

þráðlaust staðarnet er látinn hafa forgang tengist tækið netinu um þráðlaust staðarnet,

ef það er tiltækt, en um pakkagagnatengingu að öðrum kosti.

Nýr aðgangsstaðahópur er búinn til með því að velja

Valkostir

>

Sýsla

>

Nýtt

takmark

.

Til að bæta aðgangsstað við aðgangsstaðahóp velurðu hópinn og

Valkostir

>

Nýr

aðgangsstaður

. Til að afrita aðgangsstað úr öðrum hópi velurðu hópinn, flettir að

aðgangsstaðnum og velur

Valkostir

>

Skipuleggja

>

Afrita á annan stað

.

Til að breyta forgangsröð aðgangsstaða innan hóps velurðu aðgangsstað og síðan

Valkostir

>

Skipuleggja

>

Breyta forgangi

.