Búa til nýjan aðgangsstað
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
og
Tengingar
>
Nettengileiðir
.
Hægt er að fá aðgangsstaðastillingar í skilaboðum frá þjónustuveitu. Sumir eða allir
aðgangsstaðir gætu verið forstilltir fyrir tækið af þjónustuveitunni og því er ekki víst að
hægt sé að breyta þeim, búa þá til eða fjarlægja.
Þegar einn af aðgangsstaðahópunum er opnaður ( , , ) er hægt að sjá hvers konar
aðgangsstaði er um að ræða:
táknar varinn aðgangsstað
táknar aðgangsstað fyrir pakkagagnatengingu
táknar aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet
Ábending: Hægt er að búa til netaðgangsstaði fyrir þráðlaust staðarnet með WLAN-
hjálparforritinu.
Nýr aðgangsstaður er búinn til með því að velja
Aðgangsstaður
.
Tækið vill leita að tiltækum tengingum. Þegar leitinni er lokið birtast tengingar sem eru
tiltækar og hægt er að samnýta með nýjum aðgangsstað.
Ef þessu skrefi er sleppt ertu beðinn um að velja tengingaraðferð og tilgreina
nauðsynlegar stillingar.
Til að breyta stillingum aðgangsstaðar skaltu opna einn aðgangsstaðahópinn og velja
aðgangsstað. Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
166 Stillingar
Heiti tengingar — Sláðu inn heiti fyrir tenginguna.
Gagnaflutningsmáti — Veldu gerð gagnatengingarinnar.
Það fer eftir því hvaða gagnatenging er valin hvaða stillingareiti er hægt að velja. Fylltu
út alla reiti sem eru merktir með
Verður að tilgreina
eða rauðri *. Aðra reiti þarf ekki
að fylla út nema þjónustuveitan biðji sérstaklega um það.
Til að hægt sé að nota gagnatengingu verður þjónustuveitan að styðja hana og, ef með
þarf, virkja hana fyrir SIM-kortið þitt.