Nokia E52 - Stillingar pakkagagna (GPRS)

background image

Stillingar pakkagagna (GPRS)

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Pakkagögn

.

Tækið þitt styður pakkagagnatengingar, eins og GPRS í GSM-símkerfi. Þegar þú notar

tækið í GSM- og UMTS-símkerfum er hægt að hafa margar gagnatengingar virkar á sama

tíma; aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu og gagnatengingar haldast virkar, t.d. á

meðan á símtali stendur.

Til að tilgreina stillingar pakkagagna velurðu

Pakkagagnatenging

og svo

Ef samband

næst

til að skrá tækið á pakkagagnasímkerfi þegar kveikt er á tækinu í studdu símkerfi

eða

Ef með þarf

til að koma á pakkagagnatengingu einungis þegar forrit eða aðgerð

þarf á henni að halda. Þessi stilling hefur áhrif á alla aðgangsstaði fyrir

pakkagagnatengingar.
Veldu

Aðgangsstaður

og færðu inn heiti aðgangsstaðarins sem þjónustuveitan lætur

þér í té, til að nota tækið sem pakkagagnamótald fyrir tölvuna þína.
Til að nota háhraða gagnatengingu velurðu

Háhraða pakkagögn

>

Kveikt

.