Nokia E52 - Kveikt á tækinu í fyrsta skipti

background image

Kveikt á tækinu í fyrsta skipti

1 Haltu rofanum inni þar til þú finnur tækið titra.

2 Ef beðið er um það skaltu slá inn PIN-númerið eða læsingarnúmerið og velja

Í

lagi

.

3 Ef beðið er um það skaltu slá inn borgina þar sem þú ert staddur/stödd ásamt

tímanum og dagsetningunni. Sláðu inn fyrstu stafina í nafni landsins til að velja það.

Mikilvægt er að velja rétt land þar sem tímasett dagbókaratriði geta breyst ef þú

breytir landi síðar meir og nýja landið er í öðru tímabelti.

4 Forritið Uppsetning síma opnast. Veldu

Byrja

til að setja forritið upp. Ýttu

endurtekið á

Sleppa

til að sneiða hjá uppsetningarforritum. Til að opna forritið

Uppsetning síma síðar velurðu

Valmynd

>

Hjálp

>

Upps. síma

.

Notaðu hjálparforritin sem eru tiltæk á heimaskjánum og stillingarforritið til að velja

stillingar tækisins. Þegar kveikt er á tækinu kann það að bera kennsl á símafyrirtæki

SIM-kortsins og velja einhverjar stillingar sjálfkrafa. Þú getur einnig fengið réttar

stillingar hjá þjónustuveitunni þinni.

Hægt er að kveikja á tækinu án þess að SIM-kort sé í tækinu. Tækið ræsir sig í sniði án

tengingar og ekki er hægt að nota þær símaaðgerðir þar sem tenging við símkerfið er

nauðsynleg.

Slökkt er á tækinu með því að halda rofanum inni.