Nokia E52 - Lykilorð

background image

Lykilorð

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir einhverjum af þessum

aðgangsnúmerum.
PIN-númer (Personal identification number) — Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað

í leyfisleysi. PIN-númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-

númerið er slegið rangt inn þrisvar sinnum er númerinu lokað og þá þarf að slá inn PUK-

númerið til að opna það.

UPIN-númer — Númerið kann að fylgja með USIM-kortinu. USIM-kortið er endurbætt

gerð SIM-korts til að nota í 3G-farsímum.

PIN2-númer — Númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir sumum SIM-kortum og er nauðsynlegt

til að geta notað suma valkosti tækisins.

Læsingarkóði (einnig kallaður öryggisnúmer) — Læsingarnúmerið hindrar að tækið sé

notað í leyfisleysi. Forstillta númerið er 12345. Hægt er að búa til og breyta númerinu

og láta tækið biðja um númerið. Haltu nýja númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri

tækinu. Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú

getur þurft að greiða viðbótargjald og persónulegum gögnum í tækinu kann að verða

eytt. Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia Care þjónustuveri eða söluaðilanum.

PUK- og PUK2-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til að breyta PIN-

númeri eða PIN2-númeri sem hefur verið lokað. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu

skaltu hafa samband við þjónustuveituna sem lét þig fá SIM-kortið.

UPUK-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til að breyta lokuðu UPIN-

númeri. Ef númerið fylgir ekki með USIM-kortinu skaltu hafa samband við

þjónustuveituna sem lét þig fá USIM-kortið.

IMEI-númer (International Mobile Equipment Identity number) — Þetta númer (15 eða

17 tölustafir) er notað til að bera kennsl á gild tæki á GSM-símkerfinu. Hægt er að útiloka

tæki, t.d. þau sem hefur verið stolið, af kerfinu. IMEI-númerið fyrir tækið er að finna

undir rafhlöðunni.