Nokia E52 - Nokia PC Suite

background image

Nokia PC Suite

Nokia PC Suite inniheldur ýmis forrit sem hægt er að setja upp á samhæfri tölvu. Nokia

PC Suite setur öll tiltæk forrit í sérstakan glugga þar sem hægt er að keyra þau. Nokia

PC Suite fylgir hugsanlega með minniskortinu ef það fylgir með tækinu.
Hægt er að nota Nokia PC Suite til að samstilla tengiliði, dagbók, verkefni og aðra

minnismiða milli tækisins og samhæfs tölvuforrits, svo sem Microsoft Outlook eða Lotus

Notes. Einnig er hægt að nota Nokia PC Suite til að flytja bókamerki milli tækisins og

samhæfra vafra og flytja myndir og myndskeið milli tækisins og samhæfrar tölvu.

Til athugunar: Skoðaðu stillingar samstillingar. Þær stillingar sem eru valdar

stjórna því hvort gagnaeyðing er hluti af hefðbundinni samstillingu.
Til að nota Nokia PC Suite þarf tölvu sem keyrir á Microsoft Windows XP (SP2) eða

Windows Vista og er með USB-tengi eða Bluetooth-tengingu.
Nokia PC Suite virkar ekki með Macintosh.
Nánari upplýsingar um Nokia PC Suite eru í hjálparhlutanum eða heimasíðu Nokia.
Uppsetning Nokia PC Suite:

1 Gakktu úr skugga um að minniskortið sé í Nokia E52 .

2 Tengdu USB-snúruna. Tölvan finnur nýja tækið og setur upp nauðsynlega rekla.

Þetta getur tekið nokkrar mínútur.

3 Veldu

Gagnaflutningur

sem USB-tengiaðferð í tækinu. Tækið er merkt sem

Removable Disk (laus diskur) í möppuglugga Windows.

4 Opnaðu rót minniskortsins í möppuglugga Windows og veldu uppsetninguna á PC

Suite.

5 Þá hefst uppsetningin. Fylgdu leiðbeiningunum sem birtast.

22 Tækið tekið í notkun

background image

Ábending: Ef þú vilt uppfæra Nokia PC Suite eða ef vandræði eru í uppsetningu Nokia

PC Suite af minniskortinu skaltu afrita uppsetningarskrána yfir á tölvuna og ræsa hana

þaðan.