Nokia E52 - Uppsetning á tölvupósti

background image

Uppsetning á tölvupósti

Nokia Eseries tækið vinnur á sama tíma og þú og á sama hraða. Samstilltu tölvupóstinn,

tengiliði og dagbók - hratt og auðveldlega með háhraðatengingu.
Þegar þú setur upp pósthólfið gæti verið beðið um eftirfarandi upplýsingar:

Notandanafn, gerð tölvupósts, miðlara móttekins pósts, gátt miðlara fyrir móttekinn

póst, miðlara fyrir sendan póst, gátt miðlara fyrir sendan póst, lykilorð og aðgangsstað.
Með póstuppsetningunni er hægt að setja upp fyrirtækjapósthólf, t.d. Microsoft

Exchange eða vefpóstþjónustu á borð við Gmail. Hjálpin styður POP/IMAP og ActiveSync

samskiptareglur.
Ef þú ert að setja upp fyrirtækispóstinn þinn skaltu hafa samband við tölvudeild

fyrirtækisins þíns til að fá frekari upplýsingar. Ef þú ert að setja upp vefpóst skaltu fara

á vefsíðu tölvupóstveitunnar þinnar til að fá frekari upplýsingar.
Póstuppsetningin ræst:
1 Flettu að póstuppsetningunni á heimaskjánum.

2 Færðu inn netfangið þitt og lykilorð. Ef uppsetningin getur ekki stillt tölvupóstinn

sjálfkrafa þarftu að velja gerð tölvupósthólfsins og færa inn tengdar

pósthólfsstillingar.

Ábending: Ef þú hefur ekki stillt pósthólfið skaltu ýta á tölvupóststakkann til að ræsa

póstuppsetninguna.
Ef önnur póstforrit eru í tækinu standa þau til boða þegar póstuppsetningin er ræst.