Nokia E52 - WLAN-hjálp

background image

WLAN-hjálp

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

St.net.hjálp

.

WLAN-hjálpin auðveldar þér að finna og tengjast við þráðlaust staðarnet. Þegar forritið

er opnað leitar tækið að þráðlausum staðarnetum og birtir þau í lista.
Veldu

Valkostir

og svo úr eftirfarandi:

Uppfæra — Til að uppfæra lista yfir tiltæk þráðlaus staðarnet.

Sía þráðlaus staðarnet — Síar út þráðlaus staðarnet á listanum yfir fundin netkerfi.

Völdu netkerfin eru síuð út næst þegar forritið leitar að þráðlausum staðarnetum.

Ræsa vefskoðun — Skoða vefinn með aðgangspunkti þráðlausa staðarnetsins.

Halda vefskoðun áfram — Halda vefskoðun áfram með virkri tengingu þráðlauss

staðarnets.

Aftengjast v. staðarn. — Til að aftengjast þráðlausa staðarnetinu.

Upplýsingar — Til að sjá upplýsingar um þráðlausa staðarnetið.

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum dulkóðunaraðferðum til að auka

öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni á því

að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án heimildar.
Nota staðarnetshjálp á heimaskjánum

Á heimaskjánum sýnir staðarnetshjálpin stöðu þráðlausra staðarnetstenginga og leita

að netkerfum. Ef uppsetningarhjálp fyrir þráðlaust staðarnet virkjast ekki sjálfgefið á

heimaskjánum geturðu virkjað hana í stillingum heimaskjás.

Til að skoða valkosti í boði skaltu velja línuna sem sýnir stöðuna. Þú getur ræst vafrann

þegar þú ert tengd/ur við þráðlaust staðarnet, tengst við netsímaþjónustuna, aftengst

við staðarnetið, leitað að staðarnetum og kveikt og slökkt á sjálfvirkri leit. Þessir

valkostir fara eftir stöðu þinni.

Þegar slökkt er á leit að þráðlausum staðarnetum og engin tenging við þráðlaust

staðarnet er virk birtist

Slökkt á staðarnetsleit

á heimaskjánum.

Til að kveikja á leit að þráðlausum staðarnetum og leita að staðarnetum velurðu línuna

sem sýnir stöðuna.

Til að ræsa leit að þráðlausum staðarnetum velurðu línuna sem sýnir stöðuna og svo

Leita að staðarnetum

.

Tengingar 145

background image

Til að slökkva á leit að þráðlausum staðarnetum velurðu línuna sem sýnir stöðuna og

Slökkva á sjálfv. leit

.

Þegar

Ræsa vefskoðun

eða

Nota fyrir

er valið býr uppsetningarhjálpin sjálfkrafa til

aðgangsstað fyrir það þráðlausa staðarnet sem er valið. Einnig er hægt að nota

aðgangsstaðinn með öðrum forritum sem þurfa tengingu við þráðlaust staðarnet.
Ef þú velur öruggt þráðlaust staðarnet er beðið um lykilorð. Nauðsynlegt er að slá inn

SSID-kóða til að tengjast við falið netkerfi.

Til að nota þráðlausa staðarnetið sem fannst fyrir netsímtalstengingu velurðu línuna

sem sýnir stöðuna,

Nota fyrir

, síðan netsímtalaþjónustu og þráðlausa staðarnetið sem

á að nota.